HJÓLIÐ er röð sumarsýninga sem Myndhöggvarafélagið í Reykjavík setur upp í opinberu rými þar sem listaverk þræða sig eftir hjóla- og göngustígum í hverfum borgarinnar. ALLT Í GÓÐU er fimmti og síðasti áfangi í sýningarröðinni sem sett er upp á fimmtíu ára afmæli félagsins árið 2022.